Skipti og skil á vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.
 
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.